25 apr. 2003Alþjóðlegt þjálfaranámskeið verður haldið í Barcelona dagana 9. - 11. maí næstkomandi í tengslum við Final four í Euroleague. Um er að ræða námskeið á vegum EABC. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá KKÍ. Fyrirlesarar á námskeiðinu eru Manel Gomas sem hefur þjálfað nokkur af bestu liðum Spánar og m.a. unnið Spánarmeistaratitilinn og Evrópukeppni félagsliða. Bozidar Maljkovic sem er einn af þekktari þjálfurum Evrópu og orðið 4 sinnum Evrópumeistari meistaraliða og verið þrisvar tilnefndur besti þjálfari Evrópu. Billy Gillispie hefur þjálfað nokkur miðskólalið í Bandaríkjunum og nú í fyrra var hann aðalþjálfari hjá Texas háskólaliðinu í El Paso.