12 apr. 2003Fimm úrslitaleikir fara fram í Laugardalshöllinni á morgun sunnudag en seinni helgi úrslitanna hjá yngri flokkunum er nú í fullum gangi. Eftir undanúrslitaleiki dagsins er orðið ljóst hvaða lið leika í úrslitaleikjunum morgundagsins en fjörið hefst klukkan 10 með úrslitaleik í 9. flokki karla. Auk þriggja úrslitaleikja hjá 9. flokki karla, 11. flokki karla og 10. flokki kvenna þá fara fram úrslitaleikir í hjá B- (gamli unglingaflokkurinn) og C-liðum (gamli 1. flokkurinn) í 2. deild karla. Fyrsti úrslitaleikurinn er klukkan 10:00 en þá berjast Njarðvík og Fjölnir um [v+]http://www.kki.is/meistarar.asp?Adgerd=FlkIsl&Keppni=9.%20fl.%20karla [v-]Íslandsmeistaratitlinn[slod-] í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001774.htm [v-]9. flokki karla[slod-]. Njarðvík vann Keflavík, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001774/17740102.htm [v-]42-33[slod-], í undanúrslitunum en Fjölnir komst í úrslit annað árið í röð og í þriðja skiptið á fjórum árum með [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001774/17740101.htm [v-]61-46[slod-] sigri á KR. Liðin mættust einnig í bikarúrslitaleiknum í mars og þá hafi Njarðvík betur, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001684/16840401.htm [v-]58-51[slod-], en Fjölnisstrákarnir eru ríkjandi Íslandsmeistarar í þessum flokki. Klukkan 11:45 hefst leikur ÍR og Fjölnis um [v+]http://www.kki.is/meistarar.asp?Adgerd=FlkIsl&Keppni=11.%20fl.%20karla [v-]Íslandsmeistaratitlinn[slod-] í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001772.htm [v-]11. flokki karla[slod-]. ÍR vann KR, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001772/17720102.htm [v-]85-63[slod-], í undanúrslitunum en Fjölnir komst í úrslit annað árið í röð og í þriðja skiptið á fjórum árum með [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001772/17720101.htm [v-]76-62[slod-] sigri á Þór frá Akureyri. Njarðvíkingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn í þessum aldursflokki frá því í 7. flokki (4 ár í röð) en þeir komust ekki í lokaúrslitin í ár. Þriðji úrslitaleikur dagsins er milli Hauka og Keflavíkur um [v+]http://www.kki.is/meistarar.asp?Adgerd=FlkIsl&Keppni=10.%20fl.%20kvenna [v-]Íslandsmeistaratitlinn[slod-] í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001776.htm[v-]10. flokki kvenna[slod-]. Haukastelpur unnu Kormák, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001776/17760101.htm [v-]68-30[slod-], í undanúrslitunum og Keflavík komst í úrslit með [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001776/17760102.htm [v-]31-15[slod-] sigri á Skallagrími. Haukastúlkur geta varið Íslandsmeistarartitlinn, bæði í þessum flokki sem og í þessum árgangi en Haukar unnu bæði 9. og 10. flokk kvenna í fyrra. Síðustu tveir úrslitaleikir dagsins eru í 2. deild karla. Klukkan 15:30 berjast Njarðvík og KR um sigurinn hjá [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001770.htm[v-]B-liðum[slod-] og klukkan 17:30 leika Ármann/Þróttur og Breiðablik til úrslita hjá [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001769.htm[v-]C-liðum[slod-]. Keppni B-liða er gamli unglingaflokkurinn (með liðstyrk) en C-liðin voru 1. flokkur fyrir breytingar.