29 jan. 2003Nýlega fór fram árleg óvissuferð KKÍ og fjölmiðlamanna. Við það tækifæri er jafnan keppt í tvíþraut sem fólgin er í körfuknattleiksþrautum í íþróttasal og skriflegu prófi. Spurningarnar voru birtar hér á vefnum nýlega, en núna birtum við svörin með. Tekið skal fram að keppni þessi er er ekki með mjög alvarlegum blæ og meira til gamans gerð. 1. Hvaða lið sigraði í Kjörísbikar karla í nóvember? Svar: Keflavík 2. Einn Íri lék í Intersport-deildinni fyrir áramót, hvað heitir hann? Svar: Maurice Carter 3. Hver er frákastahæsti leikmaður úrvalsdeildar frá upphafi? Svar: Guðmundur Bragason 4. Hvaða hafa margir erlendir leikmenn leikið hér á landi í vetur? A) 20-29, B) 30-39 C) 40-49 D) 50-59. Svar: 40-49 5. Hvað heitir þjálfari Vals í Intersport-deildinni? Svar: Ágúst S. Björgvinsson 6. Þrír fæddir Íslendingar hafa skorað meira en 20 stig að meðaltali á ferli sínum í úrvalsdeild. Hver er þeirra efstur með 23,4 stig að meðaltali í leik? Hverjir eru hinir tveir? Svar: Eyjólfur Sverrisson. Hinir eru Pétur Guðmundsson og Magnús Matthíasson. 7. Fjórtán ára stúlka lék nýlega A-landsleik og varð yngst til að leika með landsliði í hópíþrótt. Hvað heitir stúlkan? Svar: Helena Sverrisdóttir 8. Með hvaða liði leikur Logi Gunnarsson í Þýskalandi? Svar: Ulm 9. Í hvaða borg fer Stjörnuleikur NBA fram í næsta mánuði? Svar: Atlanta 10. Hvaða leikmaður hefur skorað flest stig í Intersport-deildini það sem af er í vetur? Stevie Johnson Haukum. Aukaspurning: Þekktur leikmaður leikur á næstunni sinn 400. leik í úrvalsdeild. Hver er það? Svar: Teitur Örlygsson