6 jan. 2003Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samvinnu við Biskupsstofu, býður til opins málþings um íþróttir og gildismat miðvikudaginn 8. janúar kl. 17:00 á Grand Hótel Reykjavík. Málþingið er ætlað fyrir íþróttafólk, þjálfara, íþróttakennara, foreldra og aðra sem áhuga hafa. Dagskrá: Setning málþings - Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ Íþróttir - Að vinna sigur á sjálfum sér eða öðrum? Halldór Reynisson, prestur og verkefnisstjóri á Biskupsstofu Þjálfarar og gildismat - Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari og kennari Áherslur og gildismat í íþróttum - Olav Ballisager, háskólakennari í Danmörku Hvað hafa íþróttir gefið mér sem einstaklingi? - Ólafur Stefánsson, atvinnumaður í handknattleik Pallborðsumræður undir stjórn Ellerts B. Schram Áætluð lok eru um kl. 19:30. Nánari upplýsingar og skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ s: 514-4000, netfang: andri@isisport.is