28 des. 2002Íslenska kvennalandsliðið tapaði öðrum leik sínum á Spuerkeess-mótinu í Lúxemburg í dag gegn sterku liði Svía. Íslenska liðið sýndi þó mun betri en leik en í tapinu gegn Englandi daginn áður en varð samt að sætta sig við 29 stiga tap, 49-78. Svíar byrjuðu leikinn af miklum krafti og leiddu 25-9 eftir fyrsta leikhluta og það munaði 18 stigum í hálfleik en staðan var þá 22-40 fyrir Svíum. Erla Þorsteinsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 12 stig en Birna Valgarðsdóttir gerði 11 stig. Íslensku stelpurnar spila síðasta leikinn gegn heimamönnum í Lúxemburg sem töpuðu með 19 stigum fyrir Svíum í gær. Guðbjörg Norðfjörð, faraarstjóri íslenska liðsins var mun ánægðari með leik liðsins heldur en gegn Englendingum í gær og var viss um að með sama leik hefðu stelpurnar unnið þær ensku í fyrsta leiknum. Það er fyrst og fremst sóknarleikurinn sem er að hrjá íslenska liðið að hennar mati enda hefur lítill tími gefist fínstilla liðið í sókninni. Vörnin er hinsvegar búin að vera í góðu lagi. Ísland-Svíþjóð 49-78 (9-25, 22-40, 34-61) Stig íslenska liðsins: Erla Þorsteinsdóttir 12, Birna Valgarðsdóttir 11, Kristín Blöndal 9 (6 fráköst, 3 stolnir), Helga Þorvaldsdóttir 6, Svava Ósk Stefánsdóttir 5, Marín Rós Karlsdóttir 4, Hildur Sigurðardóttir 2. Þetta var þriðji landsleikurinn gegn Svíum í sögunni en sænska liðið er með þeim betri í Evrópu. Fyrsti leikurinn tapaðist með 119 stiga mun á Norðurlandamótinu 1986 (15-134), íslenska liðið tapaði með 33 stiga mun á Norðurlandamótinu 2000 (47-80) og með þessu 29 stiga tapi í dag má áætla að íslenska liðið nálgist þær sænsku hægt og rólega. Síðasti leikur íslenska liðsins er gegn heimamönnum í Lúxemburg á morgun og hefst hann klukkan 15:00 á íslenskum tíma. Yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=125 [v-]hér[slod-].