28 des. 2002Jón Arnór Stefánsson setti í gær met sem verður örugglega seint slegið því hann lék lengst allra í leikjunum tveimur sem íslenska karlalandsliðið lék á Spuerkeess-mótinu í Lúxemburg. Jón Arnór lék alls í 57 mínútur og 20 sekúndur í landsliðinu á sama deginum í töpunum gegn Kýpur (67-68) og Lúxemburg (70-83) í gær en næstur honum kom Friðrik Stefánsson með 55 mínútur og 56 sekúndur. Venjulegur leiktími er 40 mínútur og lék Jón Arnór því í 17 mínútur og 20 sekúndur til viðbótar venjulegum leik. Jón Arnór skoraði 26 stig til saman í þessum tveimur leikjum en Friðrik Stefánsson, sem lék næstlengst, skoraði flest stigin í gær eða alls 29 í leikjunum tveimur auk þess að taka 22 fráköst á þeim rétt tæpu 56 mínútum sem hann var inná í gær. Til að bæta met Jóns Arnórs þar viðkomandi leikmaður í fyrsta lagi að spila allan tímann og leikurinn þarf að auki að vera fjórframlengdur því Jón lék í 2 mínútur og 20 sekúndur umfram þríframlengdan leik. Það má með vissu segja að 27. desember 2002 verði lengi í sögubókunum hjá íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Íslensku strákarnir fá tækifæri til að hefna tapsins gegn Lúxemburg strax í kvöld en þá spila þjóðirnar aftur og hefst leikurinn klukkan 19:30. Samkvæmt dagskrá mótsins átti sá leikur að fara fram klukkan 13:30 í dag sem hefði þýtt þriðja landsleik íslenska liðsins á einum sólarhring en það tóku menn alls ekki mál og var leikurinn því færður fram á kvöld. Yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=125 [v-]hér[slod-].