27 des. 2002Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði 44-59 fyrir Englandi í sínum fyrsta leik á Spuerkeess-mótinu í Lúxemburg í dag en auk þess taka landslið heimamanna og Svíþjóðar þátt í mótinu. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 14 stig og stal að auki 6 boltum. Það má margt betur fara hjá íslenska liðinu og 28 tapaðir boltar (15 í fyrri hálfleik) voru íslenska liðinu mjög dýrkeyptir. Íslenska liðið vann sig þó inn í leikinn á ný í öðrum leikhluta, sem vannst 10-5 og höfðu þær ensku 4 stiga forskot í hálfleik, 25-29. Stig íslenska liðsins: Birna Valgarðsdóttir 14 (6 stolnir), Helga Jónasdóttir 7, Marín Rós Karlsdóttir 6 (6 fráköst), Erla Þorsteinsdóttir 6 (6 fráköst), Hildur Sigurðardóttir 5, Helga Þorvaldsdóttir 4, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2. Allar stelpurnar spiluðu leikinn og bæði Helena Sverrisdóttir, Haukum og Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Njarðvík, komu inn á lokakaflanum en þær eru tvær yngstu landsliðsmenn Íslands í hópíþróttum frá upphafi. Helena er sú yngsta fædd 11. mars 1988 en Ingibjörg Elva er fædd sex dögum áður eða 5. mars 1988. Íslenska liðið leikur næst gegn Svíum á morgun en yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=125 [v-]hér[slod-].