27 ágú. 2001Ísland mætir Sviss í forkeppni Evrópumóts landsliða í Njarðvík á miðvikudaginn. Svisslendingar komu til landsins í gær frá Írlandi þar sem þeir töpuðu óvænt fyrir heimamönnum 69-62. Eftir leikina gegn Finnlandi er ljóst að Ísland kemst ekki áfram í keppninni að þessu sinni. Staða Íra er góð og Svisslendingar mega ekki við tapi gegn Íslandi eigi þeir að eiga möguleika á að komast áfram. Þá hafa Finnar sett pressu á Svisslendinga og Íra með sigrunum gegn Íslendingum. Tvær þjóðir komast áfram upp úr riðlinum. Leikurinn gegn Sviss verður í Njarðvík á miðvikudaginn kl. 20:00 og síðan verður leikið gegn Írum á laugardaginn kemur kl. 16:30.