12 maí 2001Þessa stundina standa yfir nefndastörf á 41. ársþingi KKÍ á Ásvöllum í Hafnarfirði. Mestur spenningur virðist vera fyrir störum allsherjarnefndar, en fyrir þeirri nefnd liggja ma. tillögur um að banna alla erlenda leikmenn, leyfa tvo erlenda leikmenn, fækkun liði í úrvalsdeild í 10 , venslasamninga og að flytja keppni unglingaflokks karla niður í 2. deild. Mjög skiptar skoðanir eru um flestar þessara tillagna og sitt sýnist hverjum. Í fyrramálið verða tekin fyrir álit nefndanna og þá verða umræður og atkvæðagreiðslur um einstakar tillögur. Þingstörf hefjast kl. 10:00 í fyrramálið. Í morgun voru eftirtaldir aðilar kosnir í fastanefndir þingsins. Fjárhagsnefnd: Magnús Svavarsson, Eyjólfur Guðlaugsson, Elínborg Guðnadóttir. Laganefnd: Halldór Halldórsson, Guðni Guðnason, Lárus Ingi Friðfinnsson. Allsherjarnefnd: Hrannar Hólm, Jón Halldórsson, Birgir Hákonarson.