8 maí 2001Ársþing KKÍ 2001 verður haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði um næstu helgi. Umræðuhópar munu starfa á föstudagkvöldið 11. maí, en þingið verður sett kl.10:00 laugardaginn 12. maí. Þinginu verður síðan framhaldið sunnudaginn 13. maí. Föstudagur 11. maí kl. 19.00 Fyrirlestur um fjármál íþróttahreyfingarinnar - Hrannar Hólm kl. 19.20 Umræður kl. 20.15 Nýtt tölfræðikerfi KKÍ kynnt - Gunnar Freyr Steinsson kl. 21.15 Lok fundar Laugardagur 12. maí kl. 10.00 Þingsetning kl. 12.00 Hádegismatur kl. 12.45 Framhald þingstarfa kl. 13.30 Þingnefndir taka til starfa kl. 18.30 Óvissuferð - veitingar í boði Hafnarfjarðar kl. 20.00 Kvöldverður í Fjörukránni Sunnudagur 13. maí kl. 10.00 Þingnefndir skila af sér, umræður og atkvæðagreiðslur kl. 12.00 Hádegisverður kl. 12.40 Þinghaldi framhaldið kl. 16.00 Áætluð þinglok. Þinggjald er kr. 2.500 pr. mann og er innifalið í því hádegisverður laugardag og sunnudag og kaffi þingdagana. Þinggjald skal greitt Verð í þríréttaðan hátíðarkvöldverð á laugardagskvöldið er kr. 2.500 pr. mann. Þeir þingfulltrúar sem þurfa gistingu er bent á Vest Norræna gistiheimilið sem er við hlið Fjörukránnar en þar er tilboð til þingfulltrúa um gistingu í tvær nætur á verði einnar!!! Pöntun skal gerð í gegn um Fjörukránna. Hádegismatur laugardag og sunnudag verður matreiddur úr nýju veislueldhúsi Hauka að Ásvöllum í beinum tengslum við fundarsalinn. Verð eins við töluðum um er 2.500 kr. Hátíðarkvöldverður verður í veislusal Fjörukráarinnar þ.s. boðið verður uppá eftirfarandi matseðil: Karrílöguð fiskisúpa. Lambafillet með rauðvínssósu og kryddjurtum. Kaffi og konfekt í eftirrétti. Verð 2.500 kr. Fyrir mat verður farið út á sjó í ca klst í boði Hafnarfjarðarbæjar og Kkd. Hauka þ.s. verða bornar fram veitingar.