11 apr. 2001Lokahóf KKÍ verður með örlítið breyttu sniði að þessu sinni, en auk hinna hefðbundnu atriða á hófinu verður glæsileg rokksýning þar sem lög bresku hljómsveitarinnar Queen verða í öndvegi. Þar er það rauðhærði rokkarinn og Þróttarinn Eiríkur Hauksson sem bregður sér í hlutverk Freddie Mercury. Dagskrá kvöldsins verður í helstu atriðum þessi: Húsið opnar kl. 19:00 Borðhald hefst kl. 20:00 Matseðill Rjómabætt skelfisksúpa að hætti hússins. Gljáðar kalkúnabringur með perusósu. Heimalagaður ís að hætti hússins með kahluasósu Skemmtiatriði: Yfir borðhaldi verður leikið á flygil (Haukur Heiðar Ingólfsson ) Verðlaunaafhendingar fara fram á milli kl: 21:30 -22:30. Þar fá þeir einstaklingar sem skarað hafa fram úr í einstökum þáttum tölfræði körfuboltans sem og bestu leikmenn, þjálfarar og dómarar afhent verðlaun sín. Að því loknu verður Queen sýning og dansleikur að því loknu. Queen: Rokksýning allra tíma á Íslandi. Einhver magnaðasta sýning sem sett hefur verið á svið á Broadway. Eiríkur Hauksson í hlutverki Freddie Mercury, syngur öll vinsælustu lög hljómsveitarinnar frá upphafi við undirleik landsliðs íslenskra hljóðfæraleikara. Hljómsveitarstjóri er Gunnar Þórðarson. Dansstjórn: Jóhann Örn Leikstjórn: Egill Eðvarðsson. Miðasala er á Hótel Íslandi og þangað þurfa félög og einstaklingar sem ætla á hófið að snúa sér til að panta miða. Miðaverð er kr. 4.900 á mann.