6 apr. 2001Nú þegar keppnistímabilinu er í þann vegin að ljúka er ekki þar með sagt að ekkert sé framundan. Nú liggja fyrir dagsetningar á einstökum viðburðum í vorstarfi KKÍ. Lokahóf KKÍ verður haldið á Broadway föstudaginn 20. apríl nk. Körfuknattleiksmenn eru hvattir til að fjölmenna á hófið, en þar verða verðlaun til einstaklinga sem skarað hafa fram úr í vetur efhent, auk skemmtiatriða. Ásþing KKÍ verður að þessu sinni haldið í Hafnarfirði dagana 11.-13. maí nk. Ljóst er að margar tillögur að reglugerðarbreytingum verða lagðar fram á þinginu að þessu sinni. Áhugamenn um málefni körfuboltans eru velkomnir á ársþingið. Síðast en ekki síst þá verður hið árlega golfmót KKÍ haldið á Strandarvelli við Hellu 22. júní nk. og hefst kl. 14:00. Núverandi og fyrrverrandi körfuknattleiksmenn, dómarar, stjórnarmenn og aðrir sem komið hafa nálgt körfubolta eru velkomnir í mótið.