21 nóv. 2024
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 15/2023-2024
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði leikmaður KR, Linards Juanzems, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í kjölfar leiks Vals og KR í meistaraflokki karla, sem fram fór þann 14. nóvember 2024.
Agamál 16/2024-2025
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hin kærða Madison Anne Sutton, leikmaður Þór, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hauka gegn Þór Akureyri, sem fram fór þann 16 nóvember 2024.