5 jún. 2023

KKÍ stóð fyrir KKÍ 2 námskeiði dagana 1.-2. júní sl. Námskeiðið heppnaðist mjög vel, en um 40 þjálfarar sátu námskeiðið. Að þessu sinni voru það Chris Oliver og Alex Sarama frá Basketball Immersion sem sáu um alla þætti námskeiðsins, sem eins og áður segir heppnaðist mjög vel. Næstu þjálfaranámskeið eru fyrirhuguð í ágúst, en verða auglýst sérstaklega.

(Chris Oliver og Alex Sarama ásamt hluta af hópnum sem sýndi á námskeiðinu)