20 sep. 2022

Keppni Subway deildar kvenna hefst í Origo-höll Vals í kvöld þegar Breiðablik heimsækir Val í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Annað kvöld verða leikir Grindavíkur og Fjölnis, og Keflavíkur og Njarðvíkur sýndir beint á Stöð 2 Sport. Fjórði leikur umferðarinnar milli Hauka og ÍR verður leikinn annað kvöld.