8 sep. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 01/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Dagur Níelsson, leikmaður ÍR b, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍR b gegn Snæfell, sem fram fór þann 3 september 2022.

Agamál 02/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Eiríkur Karlsson, leikmaður ÍR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍR gegn Keflavík, sem fram fór þann 4 september 2022.