1 sep. 2022

Fyrsti leikur keppnistímabilsins 2022-2023 fer fram í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Val/KR í ungmennaflokki kvenna í Mathús Garðabæjarhöllinni. Keppnistímabilið framundan stefnir í það stærsta hingað til í fjölda leikja, en áætla má að leiknir verða um 5.300 leikir á komandi keppnistímabili.

Leikjafjöldi hefur vaxið umtalsvert síðustu árin, og keppnistímabilið 2021-2022 var það stærsta hingað til með tæpa 4800 leiki.