27 jún. 2022Craig Pedersen og þjálfarar hans hafa valið leikmenn í æfingahóp sinn og hefur hann æft sl. daga og skipa þeir nú lokahópinn sem undirbýr sig fyrir leikinn á föstudaginn kemur í Ólafssal en 12 leikmenn verða valdir á endanum fyrir leikinn.

Íslenski landsliðs æfingahópurinn er skipaður eftirtöldum 16 leikmönnum:

Elvar Már Friðriksson · Derthona Basket, Ítalíu
Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík
Gunnar Ólafsson · Stjarnan
Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Hilmar Pétursson · Breiðablik
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Axel Guðmundsson · Hakro Merlins Crailsheim, Þýskaland
Kári Jónsson · Valur
Kristinn Pálsson · Grindavík
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Stjarnan
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll
Styrmir Snær Þrastarson · Davidson, USA
Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni
Þórir G. Þorbjarnarsson · Landstede Hammers, Hollandi
Ægir Þór Steinarsson · Gipuzkoa Basket, Spáni

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Hjalti Þór Vilhjálmsson


Fyrirkomulag í undankeppni HM 2023 · H-riðill
Ísland var í H-riðli með Rússlandi, Ítalíu og Hollandi upphaflega. Leikið er heima og að heiman. Nú í maí eftir tvo landsliðsglugga af þrem í fyrstu umferð riðlakeppninnar varð það ljóst að FIBA útlokaði Rússland frá frekari þátttöku í keppninni og öll önnur rússnesk lið sem þýðir að hin liðin þrjú (Ítalía, Ísland og Holland) eru komin áfram í keppninni og í aðra umferð sem hefst í ágúst. Þá munu tveir og tveir riðlar fara saman í einn með samtals sex liðum og stigin fara með liðunum sem þau fengu í fyrri umferðinni. Liðin sem blandast við okkar riðil verða Spánn, Georgía sem eru tryggð nú þegar og svo annað hvort Úkraína eða Norður-Makedónía (þrjú af fjórum í G-riðli) og mynda nýjan sex liða L-riðil. Þrjú þessara liða eftir aðra umferð leika á HM næsta sumar (eftir gluggan í febrúar 2023). Alls verða það 12 evrópsk lið sem leika á HM sem fram fer í Japan, Indónesíu og á Filipseyjum.


Allt um leikina, mótið og heimasíða keppninnar er að finna hér á KKI.is:
www.kki.is/landslid/karlar/hm-2023/