24 jún. 2022U20 ára landslið kvenna sumarið 2022 tekur þátt í Evrópumóti FIBA í byrjun júlí. Halldór Karl Þórsson þjálfari liðsins og aðstoðarþjálfarar hans, Nebojsa Knezevic og Berglind Gunnarsdóttir, hafa valið sitt 12 manna lið fyrir mótið.

Boðað var til æfinga í stórum æfingahópi leikmanna sem æfðu í úrtakshóp í lok maí og nú hefur lokahópurinn verið valinn.

EM fer fram 9.-17. júlí í Skopje í Makedóníu en liðið heldur af stað 7. júlí. Ísland hefur leik í B-riðli með Armeníu, Þýskalandi, Ísrael og Georgíu.

U20 kvenna · 2022
Anna Lilja Ásgeirsdóttir · Njarðvík
Diljá Ögn Lárusdóttir  · Stjarnan
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar
Helena Rafnsdóttir · Njarðvík
Hulda Björk Ólafsdóttir · Grindavík
Karen Lind Helgadóttir · Þór Akureyri
Lára Ösp Ásgeirsdóttir · Njarðvík
Lea Gunnarsdóttir · KR
Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir · Grindavík
Thea Olafía Lucic Jónsdóttir · Grindavík
Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar
Vilborg Jónsdóttir · Njarðvík

Sjúkraþjálfarar: Anna Sóley Jensdóttir og Jóhanna Herdís Sævarsdóttir