22 apr. 2022

Þriðja leik Hattar og Álftaness í umspili 1. deildar karla hefur verið seinkað til kl. 20:15 í kvöld. Þetta kemur til þar sem flugi austur á Egilsstaði var seinkað fram á kvöld.

Höttur leiðir 2-0 í seríunni og geta með sigri í kvöld unnið sér sæti í Subway deild karla á næstu leiktíð.