4 apr. 2022
Gluggi fyrir úrslitakeppni yngri flokka hefst miðvikudaginn 6. apríl, en á þessu tímabili fara allar deildir yngri flokka 8 liða úrslit.
Í þeim deildum þar sem lið eru færri en 8 sitja efstu liðin hjá í 8 liða úrslitum og fara beint í undanúrslit, meðan önnur lið leika um að komast í undanúrslit. Krýndir verða Íslandsmeistarar í hverjum flokki, frá 9. flokki og upp úr, en sigurvegarar í úrslitakeppni neðri deilda verða meistarar í viðkomandi deild.
8 liða úrslit > 6.-24. apríl
4 liða úrslit > 25. apríl-8. maí
Úrslit 11.-16. maí