16 des. 2021

 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 39/2021-2022

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ksenja Hribljan, leikmaður Tindastóls, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóll gegn Ármanni, sem fram fór þann 4. Desember 2021.

Agamál 40/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hákon Hjartarsson, þjálfari Fjölnis, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvík gegn Fjölni, sem fram fór þann 11. Desember 2021.