7 okt. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 12/2021-2022

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Guðmundur Auðun Gunnarsson, leikmaður Þróttar Voga, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Ármanns og Þróttar Voga í 2. deild mfl. karla sem fram fór þann 24. september sl.

Agamál 14/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hugo Salgado, þjálfari ÍA, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍA gegn Haukum, sem fram fór þann 28. september 2021.

Agamál 15/2021-2022

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Pálmi Geir Jónsson, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Álftanes gegn Hamar, sem fram fór þann 1. október 2021.

Agamál 16/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Benedikt Rúnar Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þór Þorlákshöfn gegn Njarðvík, sem fram fór þann 2. október 2021.