29 sep. 2021

Búið er að opna fyrir skráningu í 2. deild kvenna, en leikið verður laugardaginn 16. október. Að þessu sinni verður leikið á Flúðum í umsjón Hrunamanna. Boðið verður upp á kvöldskemmtun eftir mót, en frekari upplýsingar varðandi það verða sendar á þátttökulið þegar nær dregur móti.

Tekið er á móti skráningu í mótið hérna.

Greiða þarf þátttökugjald við skráningu, en skráning verður ekki tekin gild fyrr en þátttökugjald hefur verið greitt. Þátttökugjald, kr. 15.000 pr. lið skal millifæra á:
710169-1369
0121-26-1369
Kvittun sendist á kki@kki.is með nafn liðs sem skýringu.