12 jún. 2021Vestri sigraði í kvöld lokaúrslitin í 1. deild karla með því að sigra einvígið gegn Hamar 3-1. Lokatölur fyrir vestan 100:82. Vesti leikur því í efstu deild á næsta tímabili en þeir voru síðast í efstu deild tímabilið 2013-2014 og þá undir merkjum KFÍ.

Það verða því Breiðablik og Vestri sem fara upp á þessu tímabili og taka liðin sæti Hauka og Hattar sem leika í 1. deild á næsta ári.

KKÍ óskar Vestra til lukku með árangurinn!