12 jún. 2021

Grindavík sigraði í kvöld lokaúrslitin í 1. deild kvenna með því að sigra einvígið gegn Njarðvík 3-2. Lokatölur oddaleiksins 68:75 fyrir Grindavík. Grindavík leikur því í efstu deild á næsta tímabili.

Njarðvík færist einnig upp í efstu deild kvenna, þar sem KR ákvað að þiggja ekki sæti Snæfells í deildinni. Bæði lið úrslita 1. deildar kvenna leika því í úrvalsdeild leiktíðin 2021-2022.

KKÍ óskar Grindavík til lukku með árangurinn!