30 maí 2021

Stjarnan er Íslandsmeistari unglingaflokks karla eftir 91-79 sigur á ÍR í úrslitaleik í Mathús Garðabæjarhöll Stjörnunnar í dag.

Leikurinn var fjörugur allan tímann, en Stjarnan náði forystunni um miðjan fyrsta leikhluta og létu hana aldrei af hendi. ÍR gerði sig líklega til að jafna leikinn en náðu því aldrei og sigurinn varð því Stjörnumanna. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Dúi Þór Jónsson var valinn bestu maður leiksins en hann skilaði 13 stigum, 14 stoðsendingum og 6 fráköstum. Hugi Hallgrímsson var einnig atkvæðamikill með 21 stig, 9 fráköst og 2 varin skot.
Ólafur Björn Gunnlaugsson var atkvæðamestur ÍR-inga með 29 stig og 9 fráköst.