30 maí 2021

KR c er meistari neðri deilda 10. flokks drengja eftir 51-60 sigur á ÍR b í úrslitaleik í Mathús Garðabæjarhöll Stjörnunnar í dag.

KR c hafði frumkvæðið lengst af, þó ekki munaði miklu á liðunum mest allan leikinn. ÍR tókst að komast yfir þegar skammt var til leiksloka, en KR c landaði sigrinum með góðum endaspretti. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Lars Erik Bragason fór fyrir liði KR c 8 stig og 19 fráköst. Róbert Frímann Stefánsson Spanó átti einnig góðan leik með 25 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar.
Hjá ÍR b átti Friðrik Leó Curtis tröllaframmistöðu með 15 stig og 21 frákast.