29 maí 2021

Stjarnan er Íslandsmeistari í 9. flokki stúlkna eftir 77-47 sigur á Keflavík í úrslitaleik í TM-helli ÍR í dag.

Eftir jafnan fyrsta leikhluta, tók Stjarnan öll völd á vellinum. Stjarnan leiddi með 9 stigum í hálfleik, 20 eftir þriðja leikhluta og lauk leik með 30 stiga sigri. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Kolbrún María Ármannsdóttir var ein þeirra leikmanna sem fór fyrir liði Stjörnunnar í dag og var valinn maður leiksins í leikslok. Hún skilaði 23 stigum, 13 fráköstum og 3 stoðsendingum. Ísold Sævarsdóttir skilaði 20 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum, og Elísabet Ólafsddóttir skoraði 11 stig, tók 15 fráköst, stal 7 boltum og varði 4 skot.