29 maí 2021

Grindavík er Íslandsmeistari í stúlknaflokki eftir 61-64 sigur á Keflavík í úrslitaleik í TM-helli ÍR í dag.

Grindavík hóf leikinn mun betur og leiddu með 12 stigum eftir fyrsta leikhlutann. Keflavík gafst þó ekki upp og náði að minnka muninn, en tókst ekki að klára endurkomuna. Hægt er að sjá myndir úr leiknum hérna.

Jenný Geirdal Kjartansdóttir var ein þeirra leikmanna sem fór fyrir liði Grindavíkur í dag og var valinn maður leiksins í leikslok. Hún skilaði 15 stigum, 14 fráköstum, 2 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Hekla Eik Nökkvadóttir skilaði 19 stigum, 6 fráköstum, 7 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.