7 maí 2021

Sigmundur Már Herbertsson dæmdi leik Hauka og Hattar í Dominosdeild karla í gær, þessi leikur var 2000. leikurinn sem Sigmundur dæmir í mótum á vegum KKÍ og er hann aðeins annar dómarinn sem nær þeim áfanga. Rögnvaldur Hreiðarsson sem dæmdi með Sigmundi í gær var að dæma leik númer 2036.

Sigmundur hóf dómgæslu haustið 1994 og hefur lengi verið einn öflugasti dómari landsins og dæmt 48 leiki í lokaúrslitum úrvalsdeildar karla og 25 í lokaúrslitum úrvalsdeildar kvenna. Þá má geta þess að hann hefur dæmt 12 bikarúrslitaleiki karla og 6 bikarúrslitaleiki kvenna.

Sigmundur hefur 13 sinnum verið valinn besti dómarinn af leikmönnum úrvalsdeildanna.

Að auki má geta þess að Sigmundur var lengi alþjóðlegur dómari og hefur enginn Íslendingur dæmt fleiri FIBA leiki en hann, alls 223.

KKÍ óskar Sigmundi til hamingju með áfangann.

Mynd: Gunnar Freyr Steinsson