11 feb. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 24/2020-2021              

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Óskar Guðmundsson, leikmaður Stjörnunar b sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjarnan b gegn Keflavík, sem fram fór þann 02.febrúar 2021.

Agamál 25/2020-2021             

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hrafn Þórhallsson, leikmaður Fjölnis b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnir b gegn Grindavík, sem fram fór þann 02.febrúar 2021.