7 okt. 2020

Vegna hertra aðgerða yfirvalda til að sporna við útbreiðslu COVID-19 og tilmæla sóttvarnarlæknis og Almannavarna um að gert verði hlé á íþróttastarfi ákvað stjórn og mótanefnd KKÍ á fundi sínum í dag að fresta mótahaldi í öllum aldursflokkum vegna almannahagsmuna til og með 19. október og endurmeta stöðu mála að þeim tíma liðnum. Mælst er til þess af sóttvarnarlækni að íþróttastarf verði stöðvað og með þessari ákvörðun vill KKÍ leggja sitt á vogarskálarnar í varnarbaráttunni gegn faraldrinum. 
 
Á tímum sem þessum, þegar kallað hefur verið eftir samstöðu þjóðarinnar, telja stjórn, mótanefnd og starfsfólk KKÍ réttast að ganga í takti við tilmæli sóttvarnarlæknis og almannavarna í ljósi þess að ekki hafa komið fram skýr fyrirmæli í dag frá hinu opinbera. 
 
Beðið er eftir nánari útskýringum heilbrigðisráðuneytis á útfærslum æfinga og mun skrifstofa KKÍ senda frekari upplýsingar þegar þær berast.