Lög Körfuknattleikssambands Íslands
Heiti og tilgangur:
1. grein
Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) er æðsti aðili um öll körfuknattleiksmál innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Aðsetur sambandsins skal vera í Reykjavík.
2. grein
Körfuknattleikssamband Íslands er samband körfuknattleiksráða, héraðssambanda og íþróttabandalaga og eiga öll þau félög innan ÍSÍ er iðka og keppa í körfuknattleik rétt á aðild að KKÍ.
3. grein
Starf KKÍ er í meginatriðum:
a) Að hafa yfirstjórn allra íslenskra körfuknattleiksmála.
b) Að vinna að eflingu körfuknattleiks á Íslandi.
c) Að vera fulltrúi Íslands í Alþjóðakörfuknattleikssambandinu (FIBA) og Körfuknattleikssambandi Evrópu (FIBA Europe).
Skipulag:
4. grein
Málefnum KKÍ stjórna:
a) Körfuknattleiksþingið.
b) Stjórn KKÍ.
c) Formannafundir.
5. grein
Körfuknattleiksþingið fer með æðsta vald á málefnum KKÍ. Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda KKÍ. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu virkra körfuknattleiksiðkenda og skal miðað við iðkendatölur ÍSÍ árið á undan þannig að fyrir allt að 50 iðkendur koma 2 fulltrúar og síðan 1 fyrir hverja 50 eða brot úr 50 fram yfir það.
Þingið skal halda í maímánuði annað hvert ár. Stjórn KKÍ skal boða bréflega til þingsins með minnst sex (6) vikna fyrirvara. Málefni, sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn KKÍ minnst 21 degi fyrir þing. Þá skal stjórn KKÍ kynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt ársskýrslu stjórnar í síðasta lagi einni viku fyrir þing.
Körfuknattleiksþingið er lögmætt, ef löglega hefur verið til þess boðað.
Stjórn KKÍ skal skipa kjörnefnd eigi síðar en tuttugu og einum degi fyrir körfuknattleiksþing og skal nefndin leggja fram tillögur til körfuknattleiksþing um nýja stjórnarmenn eins og lög gera ráð fyrir.
6. grein
Allir þingfulltrúar skulu hafa kjörbréf og hafa fulltrúar atkvæðisrétt samkvæmt kjörbréfum er þingið hefur samþykkt þau. Auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:
a) Stjórn og varastjórn KKÍ.
b) Endurskoðendur KKÍ.
c) Framkvæmdastjórn ÍSÍ.
d) Framkvæmdastjórar KKÍ og ÍSÍ.
e) Allir nefndarmenn fastanefnda KKÍ.
f) Dómarar dómstóla áfrýjunardómstóls KKÍ.
g) Fulltrúi Menntamálaráðherra.
h) Einn fulltrúi Körfuknattleiksdómarafélags Íslands.
Auk þess getur stjórn KKÍ boðið aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til.
Aðeins sá sem er í körfuknattleiksfélagi innan sérráðs eða héraðssambands er kjörgengur fulltrúi þess á körfuknattleiksþingi. Hver fulltrúi hefur eitt atkvæði, en auk þess getur hann farið með eitt annað atkvæði samkvæmt skriflegu umboði.
7. grein
Aukaþing má halda ef nauðsyn krefur, ef 2/3 hlutar formannafundar sem mæta til löglega boðaðs formannafundar eða helmingur sambandsaðila óskar þess.
Alla boðunar- og tilkynningafresti til aukaþings má hafa helmingi styttri en til reglulegs þings. Fulltrúar á aukaþingi eru þeir sömu og voru á næsta reglulega þingi á undan og gilda sömu kjörbréf. Þó má kjósa að nýju í stað fulltrúa, sem er látinn, veikur eða fluttur úr héraðinu, eða er forfallaður á annan hátt. Á aukaþingi má ekki gera laga- eða leikreglnabreytingar og ekki kjósa stjórn nema bráðabirgðastjórn, ef helmingur kjörinnar stjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum, eða stjórnin að eigin dómi orðin óstarfhæf. Á aukaþingi boðuðu af formannafundi er heimilt að gera reglugerðabreytingar sem þegar hafa verið lagðar fram til umræðu á formannafundi.
Að öðru leyti gilda um aukaþing sömu reglur og um reglulegt körfukattleiksþing.
8. grein
1. Þingsetning.
2. Kosning starfsmanna:
a) Kosning kjörbréfanefndar.
b) Kosning fyrsta og annars þingforseta.
c) Kosning fyrsta og annars þingritara.
3. Kosning fastra nefnda:
a) Fjárhagsnefnd
b) Laga- og leikreglnanefnd.
c) Allsherjarnefnd.
Nefndir þessar eru skipaðar þremur mönnum hver og kjósa þær sér formann.
4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar.
6. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlanir fyrir næsta ár.
7. Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær, sem borist hafa til stjórnarinnar.
8. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál, sem borist hafa til stjórnarinnar.
- ÞINGHLÉ -
9. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðslur um þær.
10. Önnur mál.
11. Kosning formanns.
12. Kosning sex meðstjórnenda og þriggja manna varastjórn.
13. Kosning sex manna í aga og úrskurðarnefnd KKÍ.
14. Kosning þriggja manna í Áfrýjunardómstól KKÍ og þriggja til vara.
15. Kosning tveggja endurskoðenda.
16. Kosning fulltrúa á Íþróttaþing.
17. Þingforseta og þingritara falið að ganga frá þinggerð.
18. Þingslit.
Allir aðilar eru kosnir til tveggja ára.
Fái þeir sem um er kosið, jafnmörg atkvæði, skal kjósa um þá á ný bundinni kosningu. Verði þeir enn jafnir, ræður hlutkesti. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Þingið getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra fulltrúa leyft að taka fyrir mál, sem komið er fram eftir að dagskrá þingsins var send sambandsaðilum.
Ársskýrslu KKÍ, sem stjórnin skal leggja fjölritaða fyrir þingið og ágrip af fundargerðum þingsins, skal senda framkvæmdastjórn ÍSÍ og sambandsaðilum KKÍ innan tveggja mánaða frá þingslitum.
9. grein
Stjórn KKÍ fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórn KKÍ skipa sjö menn. Formaður skal kosinn til tveggja ára í senn. Á hverju þingi skal kjósa sex stjórnarmenn til tveggja ára. Kjósa skal þrjá varamenn til tveggja ára í senn og taka þeir sæti í stjórninni í þeirri röð sem þeir eru kjörnir. Til að ná kjöri sem formaður þarf meirihluta greiddra atkvæða. Náist ekki meirihluti við fyrstu kosningu skal kjósa á ný um þá tvo menn sem flest atkvæði hlutu. Ræður þá einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum.
Við kjör annarra stjórnarmanna og varamanna gildir sú regla að þeir sem flest atkvæði fá eru rétt kjörnir. Stjórnin skiptir með sér verkum að öðru leyti en ákveðið er í þessum lögum. Formaður KKÍ boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.
Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn KKÍ eða varastjórn skulu tilkynna það til stjórnar KKÍ ekki síðar en 10 dögum fyrir ársþing. Berist ekki framboð fyrir þann tíma skal stjórn KKÍ hlutast til um tilnefningu aðila til stjórnarkjörs á ársþingi.
Stjórn KKÍ er heimilt að ráða launað starfsfólk, m.a. framkvæmdastjóra og skal stjórnin setja honum erindisbréf.
Reikningsár KKÍ skal vera almannaksárið.
10. grein
Stjórn KKÍ skal strax að loknu körfuknattleiksþingi skipa eftirtaldar nefndir:
Mótanefnd.
Dómaranefnd.
A-landsliðsnefnd karla.
A-landsliðsnefnd kvenna.
Unglinganefnd.
Fræðslunefnd
Hver nefnd skal skipuð minnst þremur mönnum, nema annað sé ákveðið í reglugerð.
Stjórn KKÍ skal setja öllum nefndum skipunarbréf. Í upphafi starfsárs skulu nefndir gera starfsáætlun og skal hún lögð fyrir stjórn KKÍ til staðfestingar. Nefndir KKÍ hafa ekki sjálfstæðan fjárhag, nema stjórn KKÍ ákveði annað í skipunarbréfi. Stjórn KKÍ skal boða formenn nefnda og fulltrúa dómara eða þjálfara á stjórnarfundi þegar þurfa þykir eða þeir óska þess.
11. grein
Öll aðildarfélög KKÍ eiga rétt á að tilnefna einn fulltrúa á formannafund KKÍ. Þar eiga einnig sæti stjórnarmenn KKÍ. Formannafundur skal boðaður minnst tvisvar á meðan á Íslandsmóti stendur og skal einn fundur haldinn áður en mótið hefst. Formaður KKÍ boðar nefndina til fundar og stjórnar fundum hennar. Formannafundur er vettvangur umræðu um körfuknattleiksmál. Hann er stjórn KKÍ einnig ráðgefandi um lausn ýmissa mála, sem koma upp milli körfuknattleiksþinga. Stjórn KKÍ verður að leggja endurskoðaða ársreikninga og fjárhagsáætlun KKÍ fyrir formannafund það ár sem körfuknattleiksþing er ekki haldið. Fari svo að stjórnarmaður/menn segi sig úr stjórn KKÍ skal kosið um nýja varamenn á næsta formannafundi á eftir. Til að ná kjöri þarf einfaldan meirihluta.
12. grein
Starfssvið stjórnar KKÍ er m.a.:
1. Að framkvæma ályktanir körfuknattleiksþingsins.
2. Að vinna að stofnun nýrra sérráða í samráði við hlutaðeigandi héraðssambönd.
3. Að vinna að eflingu körfuknattleiks í landinu.
4. Að hafa eftirlit með, að leikreglur og reglugerðir fyrir körfuknattleik séu jafnan í nauðsynlegu samræmi við alþjóðareglur.
5. Að taka ákvarðanir um veitingu heiðursmerkja og viðurkenninga.
6. Að senda framkvæmdastjórn ÍSÍ lögboðnar skýrslur.
7. Að líta eftir því, að lög og reglur KKÍ séu haldnar.
8. Að hafa yfirumsjón með körfuknattleiksmótum.
9. Að samþykkja alþjóðamót, sem haldin eru á Íslandi.
10. Að samþykkja þátttöku íslenskra körfuknattleiksliða í alþjóðamótum erlendis.
11. Að koma fram innanlands og erlendis f.h. körfuknattleikshreyfingarinnar í landinu.
12. Að skera úr ágreiningi eða taka ákvarðanir um málefni sem lög þessi eða/og reglugerðir KKÍ ná ekki yfir
13. Að ákveða þátttökugjöld fyrir hvert tímabil.
14. Stjórn KKÍ er heimilt að banna körfuknattleiksviðburði sem fara fram á sama tíma og stórleikir á vegum sambandsins.
Stjórn og/eða framkvæmdastjóri KKÍ líta eftir því að lög og reglugerðir KKÍ og leikreglur séu haldin og geta vísað brotum aðila til aga og úrskurðarnefndar KKÍ eftir atvikum til úrskurðar. Í sérstökum tilfellum þegar lög þessi eða reglugerðir KKÍ eru ekki fullnægjandi geta þau tekið til skoðunar sjálfstætt brot aðila og beitt þeim viðurlögum er getur í lögum þessum.
Stjórn KKÍ hefur frjálsan aðgang að öllum körfuknattleiksmótum og sýningum, sem fram fara innan vébanda KKÍ.
13. grein
Stjórn KKÍ setur nauðsynlegar reglugerðir um þau málefni, sem snúa að allri framkvæmd laga þessara. Nær það til allra breytinga á gildandi reglugerðum sem og setningu nýrra reglugerða.
Nýjar reglugerðir og breytingar á gildandi reglugerðum skulu kynntar aðildarfélögum með dreifibréfi og taka þær gildi til bráðabirgða samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar KKÍ þar til körfuknattleiksþing eða formannafundur hefur samþykkt reglugerðina. Ekki þarf að birta þær með sérstökum hætti svo þær öðlist gildi heldur er nægjanlegt að þær séu kynntar með dreifibréfi.
Óski aðildarfélög eftir setningu nýrra reglugerða eða breytinga á gildandi reglugerðum skal slíkum óskum beint til stjórnar KKÍ.
14. grein
Dómstig KKÍ eru:
a) Aga og úrskurðarnefnd KKÍ
b) Áfrýjunardómstóll KKÍ
15. grein
Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ skal skipuð formanni og tveimur varaformönnum, sem skulu allir löglærðir, og auk þeirra þremur mönnum. Skulu þeir kosnir á körfuknattleiksþingi til tveggja ára í senn.
Nefndin starfar skv. aga- og úrskurðarreglum KKÍ og skulu a. m. k. þrír taka þátt í ákvörðun nefndarinnar og skal a. m. k. einn þeirra vera formaður eða varaformaður.
Nefndin getur tekið ákvörðun um viðurlög skv. lögum þessum, reglugerðum KKÍ og aga- og úrskurðarreglum KKÍ gegn aðildarfélögum, forráðamönnum, leikmönnum, þjálfurum, starfsmönnum og öðrum þeim, sem eru innan vébanda aðildarfélaga KKÍ.
16. grein
Áfrýjunardómstóll KKÍ starfar skv. lögum þessum og reglugerð KKÍ um áfrýjunardómstól.
17. grein
Áfrýjunardómstóll KKÍ skal skipaður 3 löglærðum dómurum og 3 löglærðum til vara.
Dómarar skulu kosnir á reglulegu körfuknattleiksþingi til setu fram að næsta reglulega körfuknattleiksþingi og kýs dómstóllinn sér forseta.
Dómstóllinn starfar skv. lögum þessum og reglugerð KKÍ um áfrýjunardómstól KKÍ og skulu a. m. k. þrír fara með mál og skipar forseti í dóminn í hverju máli fyrir sig.
18. grein
Dómstóllinn tekur fyrir áfrýjanir vegna úrskurða aga- og úrskurðarnefndar sem ekki eru endanlegir samkvæmt reglugerð KKÍ um aga- og úrskurðarnefnd.
Ákvarðanir dómstólsins eru endanlegar og bindandi fyrir málsaðila. Þó er heimilt að áfrýja til áfrýjunardómstóls ÍSÍ þeim málum, sem hafa almennt gildi fyrir íþróttahreyfinguna í heild.
19. grein
Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ og áfrýjunardómstóll KKÍ hafa fullnaðarlögsögu yfir þeim málefnum sem koma upp innan vébanda Körfuknattleikssambands Íslands, sem varða lög og reglugerðir KKÍ eftir því sem við á.
Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ og áfrýjunardómstóll KKÍ skulu lúta lögum þessum og reglugerðum og skulu öll ágreiningsmál gagnvart aðildarfélögum KKÍ, forráðamönnum félaganna, leikmönnum, þjálfurum, liðsstjórum og öðrum þeim sem eru innan vébanda aðildarfélaga KKÍ rekin fyrir aga- og úrskurðarnefnd KKÍ og áfrýjunardómstól KKÍ nema það sé sérstaklega heimilað í lögum eða reglugerðum KKÍ að reka málið fyrir nefndum innan KKÍ en aldrei skal heimilt að reka ágreiningsmál fyrir almennum dómstólum
Ágreiningsmál aðila innan vébanda KKÍ gagnvart aðila innan vébanda erlends körfuknattleikssambands skal fara með samkvæmt reglum FIBA World eða FIBA Europe og hefur FIBA World eða FIBA Europe lögsögu í slíkum málum. Ákvarðanir FIBA World eða FIBA Europe í slíkum málum eru endanlegar og bindandi fyrir alla aðila en ákvörðunum FIBA World eða FIBA Europe er hægt að skjóta til Íþróttadómstólsins (Court of Arbitration for Sport, skammstafað CAS) í Lausanne í Sviss sem leysir þá endanlega úr ágreiningsmálinu í samræmi við reglur um gerðardómsmeðferð mála á íþróttasviði (Code of Sports-related Arbitration). Er sú niðurstaða endanleg og bindandi fyrir aðila.
20. grein
Lög þessi öðlast gildi þegar framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur samþykkt þau.
21. grein
Tillögur um að leggja KKÍ niður má aðeins taka fyrir á lögmætu körfuknattleiksþingi. Til þess að samþykkja þá tillögu þarf minnst 3/4 hluta atkvæða. Hafi slík tillaga verið samþykkt, skal gera öllum sambandsaðilum grein fyrir henni í þingskýrslunni og tillagan síðan látin ganga til reglulegs þings. Með fulltrúakjöri sínu til þess þings taka aðilar afstöðu til tillögunnar. Verði tillagan samþykkt öðru sinni, er það fullgild ákvörðun um að leggja KKÍ niður. Ákveður það þing síðan hvernig skuli ráðstafa eignum KKÍ, en þeim má aðeins verja til eflingar körfuknattleiksíþróttinni í landinu.
Samþykkt á Körfuknattleiksþingi 17. maí 2009