17 nóv. 2020Framundan er NBA-nýliðavalið og í ár er einn íslenskur leikmaður í valinu en það er landsliðsmaðurinn og Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson, sem leikið hefur með Davidson háskólanum undanfarin tímabil. Hann gekk til liðs við Fraport Skyliners sem atvinnumaður fyrir þetta tímabil en liðið hans leikur í efstu deild í Þýskalandi. 

Nýliðavalinu verður sjónvarpað frá höfuðstöðvum ESPN á netinu en ekki með viðhöfn líkt og venjulega en athöfnin átti að fara fram í Bacley Center í Brooklyn. Engu að síður er mikil dagskrá framundan og bíða margir spenntir eftir valinu að venju.

Ljóst er að nýliðavalið er um margt sérstakt í ár þar sem valin sjálfu var fyrst frestað, bæði út af heimsfaraldrinum sem og að lokatímabilið í háskólaboltanum, og þar með lokaárinu hjá Jóni Axel, var flautað af sl. vetur út af faraldrinum. Lið þurfa að vanda valið eftir því hvernig leikmönnum þau leita að.

Gríðarlegur fjöldi leikmanna er á hverju ári í valinu en eingöngu eru 60 leikmenn valdir í tveim umferðum. Þegar þetta er ritað er vitað af talsverðum áhuga nokkura liða sem eiga valrétt í seinni umferðinni og þau lið sem mögulega gætu kosið að velja Jón Axel þá eru það mögulega Charlotte, Sacramento og Golden State sem gætu verið áhugasöm en þau eiga tvo og þrjá rétti hvert (Valréttur + Lið)

32. Charlotte Hornets
35. Sacramento Kings
43. Sacramento Kings
48. Golden State Warriors
51. Golden State Warriors

52. Sacramento Kings
56. Charlotte Hornets


Það er því mikið afrek að vera valinn og fá samning hjá NBA liði. Pétur Guðmundsson er eini Íslendingurinn sem leikið hefur í deildinni. Hann var valinn, sem þá var þriðja umferð, af Portland Trail Blazers árið 1981 og lék í deildinni til 1989 með Portland, San Antonio og Lakers. Jón Arnór Stefánsson var síðan á samning hjá Dallas Mavericks 2003-2004 en lék ekki í deildinni á meðan hann var í þeirra herbúðum. Tryggvi Snær Hlinason fór í nýliðavalið að auki árið 2018 en var ekki valinn.

Það verður því spennandi að sjá hvað mun gerast en leikmenn geta svo fengið samninga við NBA-lið þó þeir verði ekki valdir í sjálfu nýliðavalinu.  Jón hefur vakið umtal með frammistöðu sinni með Davidsson og hefur haldið áfram að leika vel sem atvinnumaður en í fyrstu fimm leikjunum hefur hann skilað 18 stigum, 5 fráköstum og 5 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Næsta verkefni Jóns Axels verður svo landsliðsglugginn sem fram fer í FIBA „bubblu“ í Slóvakíu með karlalandsliðinu sem stendur yfir dagana 23.-29. nóvember. Þá verða tveir landsleikir á dagskránni gegn Lúxemborg og Kosovó í undankeppni HM 2023.