26 okt. 2020IceMar ehf. hefur styrkt KKÍ fyrir landsliðsverkefnin í komandi glugga og þessi frábæru skilaboð komu frá Gunnari Örlygssyni hjá IceMar fyrr í dag:

„Fyrirtæki okkar bræðra, IceMar ehf, hefur ákveðið að styrkja landsliðsverkefni KKÍ í nóvember um 500.000 kr. Úrval og gæði leikmanna eru stórkostleg og tækifæri til afreka eftir því. Rekstur KKÍ verður að fá eðlilega aðstoð frá hinu opinbera til að halda úti landsliðum okkar á þessum erfiðu tímum og ekki er verra ef einkageirinn getur hjálpað til. Áfram Ísland.”
 
„Þetta er virkilega rausnarleg gjöf frá IceMar ehf. og erum við hjá KKÍ ykkur afar þakklát fyrir stuðninginn og hvatningu ykkar til annarra fyrirtækja og ríkisins. Að fá svona góða gjöf og falleg skilaboð hvetur okkur öll áfram til okkar verka og til að gera áfram okkar allra besta til að standa okkur í baráttunni. Fyrir hönd stjónar og starfsmanna KKÍ, TAKK!, TAKK! IceMar!“ sagði Hannes S. Jónsson að þessu tilefni.