20 maí 2020

Nú er komið að fjórðu og síðustu Þrautakeppni KKÍ en nú geta þátttakendur spreytt sig í Brelluskoti. 

Íslandsmót í Brelluskoti!
KKÍ stendur fyrir Íslandsmóti í brelluskoti. Markmiðið er að skjóta bolta í körfu á einhvern furðulegan hátt eða með óhefðbundnum hætti eins og til dæmis afturábak, langt frá, með viðkomu af gólfi eða vegg o.s.fv. Það eina sem þarf að gera er að láta boltann enda á því að fara ofan í körfuhringinn.

Veitt verða aukaverðlaun fyrir uppfinningasemi og sköpunargleði. 
Í fyrstu verðlaun eru titillinn Íslandsmeistari í Brelluskoti KKÍ 2020, pizzaveislur frá Domino‘s og bolti frá Molten.

Hægt er að skila inn þátttökumyndböndum til og með fimmtudagsins 28. maí.

Hvernig tekur þú þátt í Þrautakeppni KKÍ · BRELLUSKOT
1: Taktu upp þína tilraun á vídeó á síma
2: Deildu myndbandinu með okkur á Instagram*
3: Merktu með #brelluskot og #korfubolti og merktu svo KKÍ í færsluna með @kkikarfa

*Athugið að hafa Instagram-reikninginn „opin“ svo hægt sé að sjá vídeóið.