1 maí 2020Liði KV hefur verið boðið sæti í 1. deild karla fyrir tímabilið 2020/2021. KV var efst A liða þegar keppni var hætt í mars og því hefur mótanefnd ákveðið að bjóða liðinu að færast upp um deild.

Aðeins 9 félög voru í 1. deild á nýliðinni leiktíð og því var eitt sæti laust í deildinni. Þiggi KV sætið verður 1. deildin skipuð 10 liðum næsta vetur.

Skráning í tvær efstu deildir meistaraflokka lýkur 31. maí nk., en þá skýrist það frekar hvernig deildirnar verði mannaðar.