10 feb. 2020Framundan í vikunni er bikarhátíð KKÍ og Geysis bílaleigu þegar leikið verður til úrslita í öllum flokkum í Geysisbikarnum dagana 12.-16. febrúar í Laugardalshöllinni í glæsilegri umgjörð. 

11 félög eiga fulltrúa að þessu sinni frá átta bæjarfélögum í þeim 13 leikjum sem spilaðir verða.

Allir leikir vikunnar verða sýndir, bæði á RÚV og RÚV2 og einnig verða leikir á netingu á Youtube-rás KKÍ frá úrslitaleikjum yngri flokka en á föstudaginn kemur verða tveir leikir yngri flokka, úrslitaleikir í 10. flokki stúlkna og unglingaflokki karla sýndir beint á RÚV2.

Dagskrá Geysisbikarsúrslitanna 2020:


12. febrúar - miðvikudagur · Undanúrslit
17:30 · Mfl. karla: Fjölnir - Grindavík · Beint á RÚV2
20:15 · Mfl. karla: Tindastóll - Stjarnan · Beint á RÚV2

13. febrúar - fimmtudagur · Undanúrslit
17:30 · Mfl. kvenna: KR - Valur · Beint á RÚV2
20:15 · Mfl. kvenna: Skallagrímur - Haukar · Beint á RÚV2

14. febrúar - föstudagur · Úrslit yngri flokka
16:30 · 10. fl. stúlkna: Keflavík - Njarðvík · Beint á RÚV2
18:30 · Unglingaflokkur: Breiðablik - KR · Beint á RÚV2
20:45 · 10. fl. drengja: Breiðablik - Stjarnan  · Beint á KKÍ-Youtube

15. febrúar - laugardagur
10:00 · 9. fl. drengja: Fjölnir - Stjarnan · Beint á KKÍ-Youtube
13:30 · Mfl. karla: ÚRSLITALEIKUR KARLA · Beint á RÚV
16:30 · Mfl. kvenna: ÚRSLITALEIKUR KVENNA · Beint á RÚV

16. febrúar - sunnudagur
11:30 · 9. fl. stúlkna: Keflavík - KR · Beint á KKÍ-Youtube
13:30 · Drengjaflokkur: KR - Breiðablik· Beint á KKÍ-Youtube
15:45 · Stúlknaflokkur: KR - Njarðvík · Beint á KKÍ-Youtube

#geysisbikarinn #korfubolti