20 jan. 2020

Mótanefnd hefur frestað leik Tindastóls og Þórs Akureyrar í Geysisbikar karla sem leika átti í kvöld fyrir norðan á Sauðárkróki vegna ófærðar yfir Öxnadalsheiði en þar er vegurinn lokaður nú þegar og vonskuveður.

Þetta er gert að höfðu samráði við sérfræðinga Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar sem og í samráði við bæði félögin. 

Leikið verður annað kvöld þriðjudaginn 21. janúar.

#korfubolti #geysisbikarinn