16 jan. 2020

Í kvöld eru þrír leikir í Domnio's deild karla á dagskránni. Tveir leikir hefjast kl. 19:15 í kvöld, Reykjavíkurslagir KR og Fjölnis og Vals og ÍR og svo er það suðurnesjaslagurinn Njarðvík-Keflavík kl. 20:15 í beinni á Stöð 2 Sport.

Upphitun verður í sérstöku Domino's Körfuboltakvöldi á undan beint frá Njarðvík og sérstakur minningarþáttur um Njarðvíkinginn Örlyg Sturluson verður á undan leiknum, en Örlygur lést af slysförum þennan dag fyrir 20 árum.

🍕 Domino's deild karla
🗓 Fim. 16. janúar
🆚 3 leikir
🖥 LIVEstatt á kki.is

19:15
🏀 KR-FJÖLNIR
🏀 VALUR-ÍR

19:40
➡️ Minning um Ölla · 📺 Upphitun og þáttur beint á Stöð 2 Sport frá Njarðvík

20:15
🏀 NJARÐVÍK-KEFLAVÍK ➡️📺 Beint á Stöð 2 Sport

📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildin