8 jan. 2020Rúnar Birgir Gíslason er í kvöld við störf sem eftirlitsmaður FIBA í Póllandi á leik heimastúlkna í CCC Polkwice gegn Botas Spor Kulübü Dernegi frá Tyrklandi. Um er að ræða leik í Euro Cup kvenna. Þess má geta að Helena Sverrisdóttir lék eitt tímabil með CCC Polkwice sem atvinnumaður.

Með Rúnari Birgi í dómarateyminu eru Mila Cavara frá Bosníu sem er dómari, Ivana Ivanovic frá Serbíu og Davar Gudelj frá Svíþjóð sem eru meðdómarar.

Þau munu svo öll vera aftur við störf á morgun í borginni Bydgoszcz í Póllandi í sömu keppni þegar kvennalið Artego Bydgoszcz og ACS SEPSI-SIC frá Rúmeníu.


Hægt er að sjá allt um Euro Cup kvenna á heimasíðu keppninar hérna