10 des. 2019Í dag, þriðjudaginn 10. desember, verður dregið í 8-liða úrslitin Geysisbikar karla og kvenna.

Dregið verður í fundarsal íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal á 3. hæð kl. 12:15. Þar sem veðurútlit er ekki gott þá er það vel skiljanlegt að ekki verði góð mæting frá fulltrúum félaganna í Laugardalinn og því verður bein útsending frá drættinum á facebook-síðu KKÍ.

Í pottinum á eftir verða eftirtalin lið:

8-liða úrslit karla:
Fjölnir
Grindavík
Keflavík
Sindri
Stjarnan
Tindastóll
Valur
Þór Ak.


8-liða úrslit kvenna:
Breiðablik
Grindavík
Haukar
ÍR
Keflavík
KR
Skallagrímur
Valur

#geysisbikarinn #korfubolti