22 nóv. 2019Stjórn og Afreksnefd KKÍ hefur ráðið Craig Pedersen áfram sem landsliðsþjálfara landsliðs karla næstu þrjú árin eða fram yfir lok HM 2023. 

Næstu verkefni liðsins eru forkeppnir og undankeppnir að HM en gluggarnir verða í febrúar og nóvember 2020 og febrúar 2021. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli í forkeppninni fer áfram á annað stig undankeppninnar sem leikin verður sumarið 2021. 

Craig Pedersen hefur náð frábærum árangri á undanförnum árum með liðið og unnið sér sæti í tvígang á lokamóti EM, EuroBasket, árin 2015 og 2017. 

Mikil ánægja er hjá KKÍ með endurráðningu Craig og áframhaldandi samstarf beggja aðila næstu þrjú árin.

#korfubolti