5 nóv. 2019Í dag var dregið í 16 liða úrslit Geysisbikars karla og kvenna. Dregið var í átta viðureignir í 16 liða úrslitum karla. Hjá konunum var dregið í fjórar umferðir, en fjögur lið sitja hjá og komast beint í 8 liða úrslit.

Gert er ráð fyrir að leikir 16 liða úrslita Geysisbikars fari fram dagana 5.-7. desember samkvæmt keppnisdagatali.

Eftirfarandi lið drógust saman í Geysisbikarkeppni karla:
Þór Þ. - Þór Ak.
Grindavík - KR
Vestri - Fjölnir
Stjarnan - Reynir S.
Tindastóll - Álftanes
Valur - Breiðablik
Sindri - Ármann
Njarðvík - Þór Ak. b eða Keflavík

Eftirfarandi lið drógust saman í Geysisbikarkeppni kvenna:
Njarðvík - Keflavík
Tindastóll - Haukar
Snæfell - Valur
Fjölnir - KR

Þessi fjögur lið sitja hjá og fara beint í 8 liða úrslitin:
Breiðablik
ÍR
Grindavík
Skallagrímur