20 ágú. 2019

Á næstunni fara fram fjögur námskeið sem eru hluti af þjálfaramenntun KKÍ. Um er að ræða KKÍ hluta 1.A (verklegt og bóklegt), 1.b og 2.b (fjarnám) og svo hluta 1.c sem kenndur verður í lok september.

KKÍ þjálfari 1.a. fer fram dagana 30. ágúst. - 1. september2019.
Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13.5 klukkutímar. Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. KKÍ þjálfari 1.a gildir sem 25% af lokaeinkunn á námskeiðinu. Þjálfarar sem hafa lokið 1.a. eru með leyfi til að þjálfa minnibolta 9 ára og yngri.

Hér er hægt að skrá sig á þjálfaranámsekið 1.a. sem hefst í lok ágúst 2019. 

 

Þátttökugjald fyrir 1.a. er 20.000 kr. ef greitt er fyrir 23. ágúst. Eftir 23. ágúst er þátttökugjaldið 25.000 kr.