29 jún. 2019

Þá er komið að þriðja degi Norðurlandamótsins í ár og eru andstæðingar dagsins Danmörk. Danir hafa oft verið með ágætis lið á mótinu og ekki er til neins annars að ætla, en að verkefni dagsins sé ærið.

Á síðasta ári unni undir 16 og 18 ára lið drengja sína leiki gegn Danmörku á meðan að stúlknaflokkarnir tveir lutu í lægra haldi.

Leikir dagsins við Danmörku að íslenskum tíma:

Kl. 10.30 U16 stúlkur á velli SUSI 3.
Kl. 15:00 U18 drengir á velli SUSI 3.
Kl. 17.15 U18 drengir á velli SUSI 1.
Kl. 17.30 U16 stúlkur á velli SUSI 2.

Nánar verður fjallað um leiki dagsins á Karfan.is.

Lifandi tölfræði og dagskrá leikja má finna á www.basket.fi/nc2019

Bein netútsending frá öllum leikjum mótsins: https://www.youtube.com/user/basketfinland

Mynd: Karfan.is - Frá leik Íslands og Danmerkur á síðasta ári