27 jún. 2019

Fyrsta degi á Norðurlandamóti yngri landsliða er lokið. Andstæðingur Íslands í dag var Noregur sem veitti Íslandi góða keppni í öllum leikjum dagsins. Öll liðin spila gegn hvort öðru á sama degi, þannig U16 og U18 liðin mættu öll Noregi í dag. U16 liðin fóru sitthvora áttina en drengja liðið vann öruggan sigur á meðan stúlkna liðið tapaði á grátlegan hátt. U18 liðin unnu bæði eftir kaflaskipta frammistöðu en öll liðin eiga enþá helling inni fyrir næstu daga mótsins.

Þetta árið unnust þrír sigrar á Noregi og má því segja að NM fari vel af stað.

Myndasöfn úr öllum leikjum dagsins má finna hér

Leikir dagsins fóru eftirfarandi:

U16 stúlkna: Ísland 50-54 Noregur 

U16 drengja: Ísland 78-53 Noregur

U18 stúlkna: Ísland 69-59 Noregur

U18 drengja: Ísland 83-76 Noregur

Hægt er að nálgast lifandi tölfræði allra leikja á basket.fi/nc2018.

Hægt er að nálgast beina útsendingu á Youtube.

Mynd: Karfan.is