18 jún. 2019

KKÍ birti í dag og sendi félögunum fyrstu drög fyrir Domino‘s deild karla og 1. deild karla fyrir tímabilið 2019-2020. Drögin fara nú í yfirferð hjá félögunum en þau hafa til 8. júlí að koma að sínum athugaemdum og beiðnum.  Einhverjar færslur á milli leikdaga eiga því eftir að verða vegna þessa og vegna sjónvarpsleikja.

KR hefur titilvörn sína á heimavelli gegn Grindavík. Nýliðar Fjölnis fá Val í heimsókn í fyrstu umferð á meðan nýliðar Þórs frá Akureyri heimsækja Hauka.

Leikjaniðurröðunina má sjá hér

 

Í 1. deild karla fá nýliðar Álftaness lið Skallagríms í heimsókn í fyrstu umferð en Skallagrímur spilaði á síðasta tímabili í Domino‘s deild karla. Breiðablik sem féll með Skallagrím tekur á móti Selfossi.

Leikjaniðurröðunina má sjá hér

 

Stefnt er að því að gefa út fyrstu drög í Domino´s deild kvenna og 1.deild kvenna fyrir lok vikunnar en sú vinna dróst þar sem Stjarnan dró lið sitt úr Domino´s deildinni og beðið var svara frá Breiðabliki sem svaraði í morgun eins og áður hefur komið fram.