10 maí 2019

Fyrri úrslitahelgi yngri flokka hefst í dag með undanúrslitaleikjum stúlknaflokks. Um helgina er leikið í Origo-höllinni í umsjón Valsmanna.

Undanúrslit fara fram í kvöld í stúlknaflokki og svo á morgun eru undanúrslit í 9. flokki stúlkna, 9. flokki drengja og drengjaflokki. Úrslitaleikirnir fara svo fram á sunnudag.

Lifandi tölfræði er frá öllum leikjum hér á kki.is

Beinar útsendingar frá úrslitaleikjunum:
Úrslitaleikirnir á sunnudag verða í beinni útsendingu á sunnudag á SportTV. Verða leikirnir aðgengilegir á SportTV 2 í sjónvarpinu og á heimasíðu þeirra www.sporttv.is.


Úrslit yngri flokka · Fyrri helgi, Origo-höllin

Föstudagur
Kl. 18.00 ·Stúlknaflokkur: Keflavík-Valur/Stjarnan
Kl. 20.00 ·Stúlknaflokkur: Grindavík-KR

Laugardagur
Kl. 09.00 9. flokkur stúlkna: Keflavík-Njarðvík
Kl. 10.45 9. flokkur stúlkna: Grindavík-Þór Þ./Hrunamenn/Hamar
Kl. 12.30 9. flokkur drengja: Fjölnir-Breiðablik
Kl. 14.15 9. flokkur drengja: Stjarnan-Haukar
Kl. 16.00 Drengjaflokkur: Stjarnan-Fjölnir
Kl. 17.50 Drengjaflokkur: Þór Akureyri-KR
 
Sunnudagur
Kl. 10.00 Úrslitaleikur 9. fl. stúlkna
Kl. 12.00 Úrslitaleikur 9. fl. drengja
Kl. 14.00 Úrslitaleikur stúlknaflokks
Kl. 16.00 Úrslitaleikur drengjaflokks

#korfubolti